Icelandic(IS)English (United Kingdom)

Hestafréttir

27.08.2010

Það er alltaf gaman að fá sendar myndir og góðar fréttir af hrossum frá okkur.Fjalladís frá Feti Þessar eru af Fjalladís sem var í eigu Fjölskyldunnar í Flagbjarnarholti en hún fór til Svíþjóðar núna í vetur. Fjalladís er undan Töfra og er að gera góða hluti í tölti og fjórgangi með nýjum eiganda sínum. Hin myndin er svo af hestfolaldi sem fór til Hollands í móðurkviði. Hann er undan Heimsmótsfaranum Sæfara frá Hákoti og skemmtir eigendum sínum með fjörugum leik og flottum hreyfingum.Naefill frá Ný byrjun

Annars eru merarnar að týnast heim fylfullar og núna síðast Kolfinnsdóttirin Ekkja frá Þingeyrum. Hún stoppaði ekki lengi í griðingu hjá unghestinum Hákoni frá Ragnheiðarstöðum. Ég efast um að hún hafi verið búin að vera mánuð hjá honum þegar hún var sónuð fylfull. En meira um það seinna.

 

Sumarfrí

05.08.2010

Núna loksins eru allir hestarnir í Flagbjarnarholti að verða hraustir.

Ásbyrgi 2010

Það eru bara nokkur ung trippi sem en hósta smá í haganum og einn og einn reiðhestur ekki alveg eins hressir og þeir eru vanir að vera. Við erum líka bara búin að fá tvær merar heim fylfullar sem er líka frekar ívenjulegt því venjulega eru allar merar orðnar fyllfullar um þetta leiti. Hvort sem það er pstinni að kenna eða hvað veit ég ékki. Reyndar verður sónað eitthvað núna um helgina og í næstu viku svo þetta fer að skýrast.

En lífið er ekki bara hestamennska og þar sem ekkert varð Landsmótið þá fórum við bara í lengir útilegur í staðinn. Við fórum hringinn í góðra vina hópi og heimsóttum margar af þeim fallegu náttúruperlum sem Ísland hefur upp á að bjóða. Myndirnar eru af nokkrum þeirra. Ásbyrgi, Atlavík í Hallormstaðarskógi og Drangey í Skagafirði. Allveg ógleymanlegt sumar.


Atlavík 2010

Drangey 2010

Óli on the boat going from Drangey

 

Grafik að þroskast

27.07.2010

Þessi skemmtilega 3. vetra rauðblesótta hryssa er undan Gjóstu frá Laufási og Mætti frá Grafik sumarið 2010Torfunesi. Máttur er með 8,52 í aðaleinkunn og hefur líka verið að ger það gott í keppnum. Hann kom vel út á mótum í fyrra og var alveg frábær í fimmganginum á Fjórðungsmótinu fyrir Vestan. Grafík fór mikið á tölti þegar hún var folald en er nánast alveg búin að skipta yfir í brokkið núna.

Hún er á fallegum fótum og afbragðs hófum. Hún er eins og sért á myndinni með háar herðar og  framfalleg. Hún er líka með sterkt bak og öfluga lend. Hún er rúm á brokkinu og skutlar sér mikið á því en þegar hún tölti sem folald var það hreint og með miklum fótaburði. Grafík er aðeins útskeif að framan sem okkur hefur nú aldrei Grafik sumarið 2010fundist vera löstur því þessi     "galli" virðist fylgja mörgum þeim hrossum sem eru að fá háar einkunnir fyrir hægt tölt og fegurð í reið í dómi.

Grafík er vel meðalstór og mjög þroskuð. Hún er orðin bandvön og þægileg í umgengni.

IS2007266663 Grafík er til sölu.

 

Tveggja vetra Álfasteinssonurinn Glanni

12.07.2010

Stóðhestefnið okkar Glanni frá Flagbjarnarholti hefur þroskast mikið í sumar. Glanni 2010Það var gaman að smella þessu myndum af honum þar sem hann spókaði sig um gerðið fyrir okkur þegar folarnir voru reknir heim um daginn

Glanni er undan Álfasteini frá Selfossi og Gust frá Hóli dótturinni Gjóstu frá Laufási. Hann er skemmtilega litur. Fæddur bleikálótt skjóttur, blesóttur með vagl í auga en er að verða grár. Við flettum þessu litaafbrigði upp í Feng og er hann eini skráði hesturinn með þennan lit þar. Hann getur því samkvæmt Feng gefið mörg litaafbrigði frá sér. Glanni sumarið 2010

En liturinn er ekki hans aðall heldur frekar bara bónus því Glanni er líka mjög hreyfingafallegur foli. Hann fer á öllum gangi þó hann velji brokkið mest. Hann er vel gerður hvar sem á hann er litið og okkur fynnst hann vera mikið efni í góðan og verðmætan kynbótagrip.