Samstarfsaðilar
Islandshastar Skane
Lena Brandsen er góð vinkona mín. Við kynntumst á Hólum í sumarskólanum þar árið 2008. Við urðum svo samferða á Landsmótið á Hellu þetta sama sumar þar sem við vorum í tjöldum með fjölskyldu og vinum. Við áttum skemmtilegan tíma saman þetta sumar og höfum haldið sambandi síðan. Ég hef líka farið og heimsótt Lenu til Svíþjóðar þar sem hún rekur blómlegan hestabúgarð Þar ræktar hún íslenska hesta sem hún temur, keppir á og selur ásamt því að reka farsæla ostabúð í Malmö. Lena er hörkudugleg kona sem lætur sér fátt fyrir brjósti brenna og þó svo við höfum ekki þekkts lengi í tíma talið þá eru fáar manneskjur sem mér finnst eins gaman að tala um hesta og hestamennsku við og Lenu Brandsten. Hún er opin og málefnaleg og hefur skemmtilegt sjónarhorn á hestamennskuna bæði hérna heima og úti í Svíþjóð. Þið getið forvitnast meira um Lenu á heimasíðu hennar www.islandshastarskane.se
|


